
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Þjónustumiðja trygginga leitar að liðsauka
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í útibúi Arion banka á Egilsstöðum. Í teyminu starfa öflugir einstaklingar sem veita úrvals þjónustu og ráðgjöf á sviði trygginga til viðskiptavina Arion samstæðunnar.
Það þarf ekki að vera reynslubolti í faginu en það skiptir okkur máli að starfsfólkið okkar búi yfir frumkvæði, jákvæðni og áhuga á að læra nýja hluti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Persónuleg ráðgjöf um tryggingar til einstaklinga og smærri fyrirtækja á þjónustuskrifstofum okkar, í síma, netspjalli eða tölvupósti
- Daglegar fyrirspurnir um tryggingar
- Aðstoð við tjónstilkynningar og upplýsingagjöf í tengslum við tjón
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun eða reynsla
- Framúrskarandi þjónustulund og söludrifni
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Jákvætt og uppbyggilegt viðhorf
- Reynsla af störfum í tryggingaþjónustu er kostur
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Miðvangur 6, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Þjónusturáðgjafi í Vík í Mýrdal
Arion banki

Fjármálaráðgjafi í Vestmannaeyjum
Landsbankinn

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg

Söluráðgjafi Vatn og veitna, Selfossi
Vatn & veitur

Dineout stækkar söluteymið!
Dineout ehf.

Sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Nova – Smáralind / þjónustuver
Nova

Launaráðgjafi í Mannauðslausnum
Advania

Þjónustufulltrúi
Gæðabakstur

Tryggingaráðgjafi
Tryggingar og ráðgjöf ehf.

Þjónustufulltrúi í tolladeild
Jónar Transport