
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda og Peugeot ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu og þjónustu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, langtíma- og sendibílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 250 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 30 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls níu verkstæði.

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Við leitum að duglegum einstaklingi í starf umsjónarmanns bíla hjá Brimborg. Umsjónarmaður bíla vinnur þétt með starfsfólki söludeilda. Hann aðstoðar við uppítökur og söluferli notaðra bíla, hefur umsjón með sýningar- og reynsluakstursbílum og fylgir eftir nýjum og notuðum bílum í afhendingarferli ásamt öðrum tilfallandi störfum.
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum.
Við bjóðum uppá:
- Lifandi og spennandi starf þar sem þú snertir á mörgum þáttum
- Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
- Fjölskylduvænan vinnustað með styttri opnunartíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða söludeildir við uppítökur og söluferli notaðra bíla
- Leita tilboða í viðgerðir á notuðum bílum
- Flytja bíla á milli staða
- Hafa umsjón með sýningar- og reynsluakstursbílum
- Fylgja eftir nýjum og notuðum bílum í afhendingarferli
- Aðstoða söludeildir og verkstæði með bílastæði viðskiptavina, færa bíla osfrv.
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og þekking á bílum sem nýtast í starfi
- Gilt bílpróf
- Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Snyrtimennska og stundvísi
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Færni í notkun upplýsingakerfa: Windows, Dynamics AX/Navision, CRM
- Góð íslensku og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Auglýsing birt1. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tryggvabraut 5, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaCRMDynamics NAVFrumkvæðiHeiðarleikiMicrosoft CRMMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookMicrosoft WordNavisionÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísiVandvirkniWindowsÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis
Tannlæknastofa Kópavogs

Launaráðgjafi í Mannauðslausnum
Advania

Þjónustufulltrúi
Gæðabakstur

Þjónustufulltrúi í tolladeild
Jónar Transport

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Jólavinna í Vínbúð á höfuðborgarsvæðinu
Vínbúðin

Sölumaður í verslun
Dynjandi ehf

Lyfjafræðingur - Apótekarinn á Akureyri
Apótekarinn

Starfsmaður í Hertex Akureyri
Hjálpræðisherinn

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Egilsstaðir: Deildarstjóri verkfæra og festinga
Húsasmiðjan