
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Sérfræðingur í áhættustýringu – efnahagsáhætta og líkön
Við leitum að öflugum sérfræðingi í efnahagsáhættu og líkön innan áhættustýringar. Helsta hlutverk deildarinnar er að greina og hafa yfirsýn yfir fjárhagslega áhættuþætti í starfsemi bankans. Verkefnin eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér reglubundna skýrslugjöf til stjórnar og eftirlitsaðila, sjálfvirknivæðingu á gagnaflæði og gagnadrifin greiningarverkefni.
Við viljum fá til liðs við okkur nákvæman og metnaðarfullan einstakling sem hefur áhuga á gagnagrúski og leitar stöðugt að einföldunum og leiðum til að nýta sjálfvirkni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Reglubundin upplýsingagjöf innan bankans og til eftirlitsaðila
- Þróun á kerfum til að auka sjálfvirkni í gagnaflæði og tryggja samræmi í gögnum um fjárhagslega áhættuþætti
- Greiningar á fjárhagslegum áhættuþáttum sem grundvallast á gagnavinnslu og tölfræði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði eða tengdum greinum
- Greiningarhæfni, nákvæmni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga
- Þekking á SQL fyrirspurnamálinu og forritunarmálum, svo sem Python eða R, er kostur
- Þekking og reynsla af fjármálastarfsemi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og gagnrýnin hugsun
- Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt6. nóvember 2026
Umsóknarfrestur20. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í rekstrar- og sjálfbærniáhættu
Arion banki

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Stærðfræðikennari við Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.