Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum

Komdu að kaupa inn!

Við hjá Landsvirkjun leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til liðs við innkaupadeildina okkar. Innkaupadeildin vinnur með starfsfólki um allt fyrirtækið að kaupum á vörum og þjónustu. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, vandaða ráðgjöf, gagnsæi og hagkvæmar lausnir. Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu teymi sérfræðinga.

Sem sérfræðingur í innkaupum hefur þú umsjón með og tekur þátt í innkaupa- og útboðsverkefnum, veitir ráðgjöf um innkaup og samninga, og tekur virkan þátt í þróun verklags.

Við hverju má búast?

  • Gerð útboðs- og samningsgagna
  • Samskiptum við birgja og eftirfylgni samninga
  • Greiningu gagna og hagnýtingu upplýsinga til stuðnings ákvörðunartöku
  • Nýtingu þekkingar og hugmynda til að skapa virði
  • Þátttöku í þróun og innleiðingu nýrra vinnubragða, stafrænna lausna og sjálfvirknivæðingu ferla

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Reynsla af innkaupum, samningagerð, gagnagreiningu eða sjálfvirknivæðingu er styrkur en reynsla af opinberum innkaupum er kostur
  • Greiningar- og skipulagshæfni ásamt stafrænni færni
  • Áhugi á nýtingu gervigreindar og nýrra tæknilausna til að einfalda verklag og skapa virði
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Í teyminu okkar færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað vekur áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á [email protected]

Auglýsing birt5. nóvember 2026
Umsóknarfrestur19. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar