

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan launafulltrúa til starfa í mannauðs- og launadeild sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs.
Mannauðs- og launadeild sinnir miðlægri þjónustu við stofnanir, stjórnendur og starfsfólk Akraneskaupstaðar á sviði launa-, kjara- og mannauðsmála. Deildin sinnir jafnframt launavinnslu og kjararáðgjöf fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Deildin er nú að ljúka innleiðingu Kjarna, nýs mannauðs- og launakerfis, og framundan eru fjölbreytt verkefni við áframhaldandi þróun, samræmingu verkferla og aukna þjónustu við stjórnendur og starfsfólk.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á launa- og kjaramálum, er nákvæmur og skipulagður ívinnubrögðum og á auðvelt með samskipti og samstarf.
- Launavinnsla og undirbúningur launakeyrslna með það að markmiði að rétt laun séu greidd á réttum tíma.
- Stofnun og breytingar starfsmannaupplýsinga í launa- og mannauðskerfi.
- Yfirferð launaforsendna, skráninga og gagnaskila og eftirfylgni með frávikum.
- Framkvæmd kjarasamninga og launasetning í samstarfi við mannauðs- og launateymi.
- Launaleiðréttingar, endurreikningar og frágangur launagagna.
- Skilagreinar til Skattsins, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og annarra aðila eftir því sem við á.
- Afstemmingar og önnur launatengd skýrslugjöf.
- Samskipti og þjónusta við starfsfólk og stjórnendur vegna launa- og kjaramála.
- Uppfærsla upplýsinga vegna breytinga á kjarasamningum, launatöflum og öðrum launatengdum réttindum.
- Þátttaka í þróun og samræmingu verkferla, gátlista og leiðbeininga.
- Þátttaka í áframhaldandi innleiðingu og þróun Kjarna og annarra launa- og mannauðskerfa.
- Þátttaka í umbótum og nýtingu tæknilausna og sjálfvirkni til að einfalda verkferla og auka gæði og skilvirkni.
- Önnur verkefni á sviði launa- og kjaramála eftir því sem þörf krefur.
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Reynsla af launavinnslu og/eða kjaramálum er æskileg.
- Þekking og reynsla af kjarasamningum er kostur.
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
- Góð Excel-kunnátta er kostur.
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Hæfni til að vinna undir álagi og halda utan um mörg verkefni samtímis.
Íslenska










