

Sérfræðingur í fjármálum
Viltu taka þátt í að byggja upp fjármálin hjá fyrirtæki í vexti?
Íþróttir skipta máli. Þær sameina fólk, halda börnum og ungmennum virkum og styrkja samfélög. Á bak við öflugt íþróttastarf standa félög, sjálfboðaliðar og þjálfarar sem leggja mikið á sig, og Abler er til staðar fyrir þau.
Yfir 1.000 félög og samtök nota lausnir okkar til að halda utan um skráningar, greiðslur, skipulag og samskipti, ásamt appi fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara. Abler er vel þekkt á Íslandi og vörur okkar eru í mikilli daglegri notkun. Nú sækjum við af krafti á erlenda markaði ásamt því að styðja áfram við íslenskt íþróttastarf.
Eitt af gildum okkar er sigurhugarfar. Við setjum markið hátt, tökum ábyrgð, lærum hratt og leitum stöðugt betri leiða til að þjóna viðskiptavinum okkar.
Með vextinum stækka fjármálin og við leitum að sterkum leikmanni í fjármálateymið. Starfið hentar vel aðila sem hefur grunn í bókhaldi og uppgjörum og vill vaxa hratt í starfi. Þú tekur að þér daglegan fjármálarekstur, uppgjör, reikningagerð og innheimtu og tekur virkan þátt í að byggja upp fjármálainnviði sem vaxa með félaginu.
Starfið heyrir undir fjármála- og rekstrarstjóra og felur í sér samstarf þvert á öll teymi.
- Mánaðaruppgjör, útgáfa reikninga og innheimta
- Uppbygging stjórnendaskýrslna og framsetning fjárhagsupplýsinga til stuðnings ákvarðanatöku
- Samþykktarferli birgjareikninga og greiðslur
- Uppbygging skalanlegra ferla með gervigreind og sjálfvirkni, t.d. við afstemmingar, innheimtu, greiningar og skýrslugerð
- Launaumsjón og VSK-skil í þeim löndum þar sem félagið starfar, í samstarfi við ytri ráðgjafa
- Undirbúningur ársuppgjörs og samskipti við endurskoðendur
- Samstarf við þjónustuteymi og samskipti við viðskiptavini um fjárhagsleg málefni
- Stuðningur við erlend dótturfélög og vöxt á nýjum mörkuðum
- Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærilegt
- Að minnsta kosti 3 ára starfsreynsla á sviði bókhalds, uppgjöra, fjármála eða reksturs
- Reynsla af markvissri notkun gervigreindar í starfi (t.d. Claude, ChatGPT eða Copilot)
- Færni í að setja fjárhagsupplýsingar fram á skýran hátt
- Reynsla af umsjón með fjárhagskerfum eða góð þekking á að vinna í fjárhagskerfum
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Kostur: grunnþekking í gagnavinnslu og reynsla af sjálfvirknivæðingu ferla
- Kostur: reynsla úr SaaS- eða áskriftarrekstri, af félögum í fleiri en einu landi og áhugi á íþrótta- og tómstundastarfi
- Heilsustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Farsími og internet
- Aðgangur að bestu gervigreindartólunum
- Sveigjanleiki í starfi
Íslenska
Enska










