
Fagkaup ehf
Fagkaup veitir byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu. Innan Fagkaupa eru verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Ísleifur, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg, DS lausnir, K. Þorsteinsson & Co. og Hagblikk.
Rúmlega 300 starfsmenn vinna hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Rúmlega þrjúhundruð starfsmenn starfa hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Í Mannauðsstefnu Fagkaupa er lögð áhersla á tækifæri til starfsþróunar og vaxtar í starfi með öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem heilsutengdar forvarnir skapa góðan vinnustað með vellíðan starfsfólks að leiðarljósi.

Sérfræðingur í notendaþjónustu
Fagkaup leitar að öflugum og þjónustulunduðum sérfræðingi í upplýsingatækni til að ganga til liðs við notendaþjónustu fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi og nútímalegu umhverfi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðri þjónustu, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í áframhaldandi þróun upplýsingatæknimála hjá Fagkaupum. Starfið felst bæði í notendaþjónustu á þjónustuborði og kerfisstjórnun í nútímalegu Microsoft-umhverfi.
UT-teymi Fagkaupa þjónustar um 300 starfsmenn fyrirtækisins. Teymið er léttur og skemmtilegur hópur sérfræðinga sem leysir fjölþætt vandamál – og hjálpast að þegar á reynir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tæknileg aðstoð og þjónusta við notendur í Windows og Microsoft 365 umhverfi
- Öryggis- og aðgangsmál í Microsoft Entra, Intune og Active Directory
- Bilanagreining og úrlausn vandamála í hugbúnaði og vélbúnaði
- Uppsetning, þjónusta og viðhald á tölvum, útstöðvum og tengdum búnaði
- Gerð leiðbeininga fyrir starfsfólk til að nýta upplýsingatækni í sínum störfum
- Greining og úrbætur á ferlum með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta þjónustu
- Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun UT-umhverfisins fyrirtækisins í samstarfi við Upplýsingatæknistjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni til að greina og finna lausnir
- Reynsla af Microsoft Entra, Intune og Exchange Online er kostur
- Reynsla af öryggismálum í Microsoft 365 er kostur
- Þekking á prenturum og prentumsýslu
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Öflugt félagslíf og virkt starfsmannafélag
- Árlegt heilsufarsmat
Auglýsing birt31. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HugbúnaðarprófanirSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaTölvuöryggiVerkefnastjórnun í upplýsingatækniÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skræða ehf

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania

Ert þú næsta tækniborðshetja Sensa?
Sensa ehf.

Full stack forritari | Gervigreind og sjálfvirknivæðing
KPMG á Íslandi

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skatturinn

Sérfræðingur í þróun gagnalíkana og greiningu gagna
Fjársýslan

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Fjársýslan

Hugbúnaðarsérfræðingur
Íslandsbanki

Laust starf net- og kerfisstjóra á skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Orka náttúrunnar

Power Platform & AI Developer
Alvotech hf