
Míla hf
Míla er virkur þátttakandi í uppbyggingu framtíðarinnar. Á næstunni munum við sjá nýja og spennandi lausnir vaxa og dafna á Alnetinu. Gervigreind, sýndarheimar, heildrænar fundarlausnir, fjarkennsla og heilsa eru allt svið sem koma til að eflast samhliða öflugum tengingum. Við þurfum á brautryðjendum framtíðar að halda til að styrkja stoðir fjarskipta Íslands.

Sérfræðingur í stofnkerfum
Hefurðu áhuga á fjarskiptum og gaman af því að finna út hvernig hlutirnir virka? Við leitum að tæknisinnuðum liðsfélaga í rekstur og uppbyggingu stofnkerfa Mílu.
Í starfinu færðu að vinna með fjarskiptabúnað, greina bilanir og koma nýjum tengingum í gang. Verkefnin eru fjölbreytt og henta þér sem finnst gaman að leysa tæknilegar áskoranir, vinna með öðrum og læra nýja hluti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og viðhald stofnnets Mílu
- Bilanagreining og viðgerðir
- Uppsetning, gangsetning og prófanir á nýjum búnaði og samböndum
- Þátttaka í viðhaldi og rekstri innri kerfa
- Þátttaka í uppbyggingu og þróun fjarskiptainnviða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi á tækni og vilji til að læra og þróast í starfi
- Þekking á IP-netkerfum, Ethernet og ljósleiðaratækni er kostur
- Þekking á fjarskiptaumhverfi og reynsla af fjarskiptabúnaði og uppsetningu sambanda er kostur
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni
- Hæfni til að greina vandamál og vinna yfirvegað undir álagi
- Hæfni til að miðla tæknilegum upplýsingum á skýran hátt
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
- 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
- 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
- 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi
- 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billjarðborði og golfhermi
- 🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leiðtogi málm- og véltæknigreina
Iðan fræðslusetur

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta

Laust starf net- og kerfisstjóra á skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Sérfræðingur í notendaþjónustu
Fagkaup ehf

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skræða ehf

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Landsvirkjun

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Full stack forritari | Gervigreind og sjálfvirknivæðing
KPMG á Íslandi