Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Skipulagsstjóri

Vilt þú taka þátt í að þróa og móta starfsemi Reykjalundar til framtíðar ?

Reykjalundur endurhæfing ehf. leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að gegna stöðu skipulagsstjóra. Um nýtt starf er að ræða og hefur viðkomandi tækifæri til að móta starfið í samstarfi við stjórnendur.

Skipulagsstjóri heyrir beint undir forstjóra. Hann starfar náið með framkvæmdastjórn og öðrum stjórnendum, s.s. mannauðsstjóra, fjármálastjóra, gæðastjóra og forstöðumanni upplýsinga- og velferðartækni.

Um fjölbreytt og krefjandi starf er að ræða þar sem tækifæri gefst til að hafa áhrif á þróun, skipulag og framtíðar endurhæfingarþjónustu á Reykjalundi. Starfið felur einnig í sér að leiða og samhæfa mikilvæg þverfagleg verkefni ásamt því að fylgja eftir framkvæmd stefnu, markmiða og umbóta.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun og samhæfing þverfaglegrar þróunar- og umbótaverkefna.
  • Þróun gagnadrifins skipulags fyrir alla starfsemi Reykjalundar.
  • Eftirfylgni stefnu, markmiða og verkefna Reykjalundar.
  • Verkefnastjórnun CARF faggildingar.
  • Þróun og samhæfing einstaka skipulagsþátta og verkferla.
  • Samhæfing verkefna á sviði öryggis-, viðbúnaðar- og aðgengismála.
  • Samhæfing möttöku og innleiðingar nýs starfsfólks.
  • Umsjón og samhæfing starfsemistalna, lykiltalna og stjórnendaupplýsinga.
  • Þátttaka í þverfaglegum verkefnum á sviði gæða-, mannauðs- og upplýsingamála og velferðartækni.
  • Undirbúningur, innleiðing og eftirfylgni breytinga og umbótaverkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, verkefnastjórnun.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, skipulagsþróun, breytingastjórnun eða öðrum sambærilegum verkefnum.
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Mjög góð skipulags- og greiningarhæfni ásamt hæfni til að fylgja verkefnum markvisst eftir.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnarmiðuð nálgun.
  • Hæfni til að greina heildarmynd og þau atriði sem til þarf svo að hún komist í framkvæmd.
  • Hæfni til að starfa með ólíkum fagstéttum og stjórnendum og leiða verkefni þvert á starfseiningar.
  • Þekking á heilbrigðisþjónustu, endurhæfingu, gæðamálum og/eða CARF faggildingu er kostur.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Mjög góð tölvukunnátta og gagnahæfni.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, afriti af prófskírteinum og sakavottorði. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Ólöf Árnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar - [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri - [email protected]

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Auglýsing birt4. nóvember 2026
Umsóknarfrestur18. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar