HL Adventure
HL Adventure
HL Adventure

Verkefnastjóri í MICE

Hefur þú reynslu af skipulagningu hvataferða og hefur gaman af því að skipuleggja fjölbreytt verkefni fyrir erlenda viðskiptavini? HL Adventure leitar að reynslumiklum verkefnastjóra til að bætast í hópinn.

Verkefnastjóri heldur utan um verkefnin, allt frá skipulagningu og undirbúningi til framkvæmdar og eftirvinnslu

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á skipulagshæfni, samskipti og getu til að halda utan um mörg verkefni í einu.

Við leitum að einstaklingi sem:

Hefur reynslu af skipulagningu hvataferða.

Er skipulagður og hefur góða yfirsýn.

Býr yfir framúrskarandi samskiptahæfileikum og sterkri þjónustulund.

Er sjálfstæður í vinnubrögðum, lausnamiðaður og metnaðarfullur.

Hefur áhuga á ferðalögum, viðburðum og samstarfi við erlenda viðskiptavini og samstarfsaðila.

Ef þú hefur reynsluna sem við leitum að og langar að takast á við fjölbreytt verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi, þá viljum við heyra frá þér.

Áhugasöm eru hvött til að senda inn ferilskrá og kynningarbréf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Áhersla er lögð á reynslu af skipulagningu og framkvæmd hvataferða og viðburða á Íslandi, góða þekkingu á landinu og innsýn í þá þjónustu og möguleika sem hér eru í boði.

Helstu verkefni eru:

  • Skipulagning og sala hvataferða og viðburða fyrir erlenda viðskiptavini.

  • Umsjón með verkefnum frá fyrstu fyrirspurn til framkvæmdar og eftirvinnslu.

  • Samskipti og samstarf við erlendar ferðaskrifstofur og innlenda birgja.

  • Samræming ferða og viðburða í samræmi við óskir viðskiptavina og tryggja að framkvæmd sé samkvæmt áætlun.

  • Öflun upplýsinga og lausna frá innlendum samstarfsaðilum til að setja saman ferðir og viðburði sem mæta þörfum hvers viðskiptavinar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af skipulagningu og framkvæmd hvataferða og viðburða.

  • Verkefnastjórnun og hæfni til að halda utan um mörg verkefni samtímis.

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, þjónustulund og metnaður í starfi.

  • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Enskukunnátta í tali og riti. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.
Auglýsing birt28. október 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Síðumúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.ViðburðastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar