Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi

Viltu taka þátt í að tryggja gott ástand fasteigna og annarra mannvirkja Landsnets um allt land?

Við leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna eignaumsjón og verkefnastjórnun viðhalds á fasteignum Landsnets. Starfið er fjölbreytt og felur í sér umsjón með viðhaldsverkefnum allt frá greiningu á viðhaldsþörf og áætlanagerð til framkvæmda og verkloka. Eignirnar eru víðs vegar um landið og því er mikilvægt að hafa góða yfirsýn, geta forgangsraðað verkefnum og eiga gott samstarf við starfsfólk Landsnets, verktaka og aðra þjónustuaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eignaumsjón með húsum tengivirkja, öðrum byggingum, lóðum, girðingum og tengdum mannvirkjum
  • Umsjón með rekstri og viðhaldi varaaflsvéla Landsnets, bæði færanlegra varaaflsstöðva og varaaflsstöðvarinnar á Bolungarvík
  • Gerð og eftirfylgni skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald
  • Forgangsröðun, undirbúningur og verkefnastjórn viðhalds- og endurbótaverkefna
  • Eftirlit með framkvæmdum, kostnaði, gæðum og framvindu verkefna
  • Móttaka og eftirfylgni ábendinga og beiðna vegna fasteigna og lóða
  • Skráning upplýsinga um eignir, ástand þeirra, viðhaldsþörf og unnin verk

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem iðnmenntun eða háskólamenntun á sviði byggingar-, framkvæmda- eða tæknigreina
  • Reynsla af fasteignaumsjón, viðhaldi, framkvæmdum eða verkefnastjórnun
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Hæfni til að vinna með viðhalds-, verk- og kostnaðaráætlanir
  • Góð almenn tölvukunnátta og vilji til að tileinka sér ný kerfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Gilt ökuskírteini

Starfsstöð og starfssvæði

Starfið er auglýst án staðsetningar, en Landsnet er með starfsstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík og getur starfið verið á hverri þeirra sem er.

Eignir Landsnets eru víðs vegar um landið og starfinu fylgja því regluleg ferðalög innanlands.

Við bjóðum

Hjá Landsneti tekur þú þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við leggjum áherslu á fagmennsku, samvinnu, virðingu og ábyrgð og styðjum starfsfólk í að þróa hæfni sína og takast á við nýjar áskoranir.

Starfinu fylgja fjölbreytt verkefni, sjálfstæði og tækifæri til að hafa áhrif á hvernig við skipuleggjum og þróum eignaumsjón og viðhald fasteigna Landsnets til framtíðar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Vignir Örn Sigþórsson á [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember. Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.

Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar