

Verkefnastjóri viðburða
Harpa er að bæta í öflugt teymi verkefnastjóra á viðburða- og tæknisviði. Starfið hentar einstaklingi sem nýtur sín í hringiðu tónlistar, menningar og ráðstefnuhalds og hefur gaman af fólki og fjölbreytileika.
Verkefnastjóri þarfagreinir, kostnaðarmetur og fylgir eftir tæknilegum undirbúningi viðburða fyrir viðskiptavini Hörpu og ber ábyrgð á framkvæmd þeirra.
Starfið er unnið samkvæmt vaktafyrirkomulagi sem nær einnig yfir kvöld og helgar.
• Verkstjórn og ábyrgð á framkvæmd úthlutaðra viðburða
• Alhliða tæknilegur undirbúningur, þarfagreining og tæknistjórn viðburða
• Kostnaðarmat, sala á virðisaukandi þjónustu og samskipti við viðskiptavini
• Uppgjör á tæknilegum þáttum verkefna
• Skráning í viðeigandi kerfi og umsjón með afmörkuðum tæknilegum kerfum
• Þátttaka í umbótavinnu
• Stúdentspróf og/eða iðnmenntun er kostur
• Reynsla af alþjóðlegu viðburðahaldi er kostur
• Að minnsta kosti 4 ára reynsla af framleiðslu,tæknistjórn og/eða verkefnastjórnun viðburða
• Þekking á bókunar- og leigukerfum (t.d. Rentman) er kostur
• Mjög góð almenn tölvuþekking
• Góð tækniþekking á ljósa-, hljóð- og myndkerfum fyrir viðburði
• Reynsla af kostnaðaráætlunum, tilboðsgerð og markmiðadrifinni verkefnastjórnun
• Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki
• Rík þjónustulund og lausnamiðuð nálgun, frumkvæði og metnaður
• Hæfni til að vinna undir álagi og tímapressu
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Íslenska
Enska










