Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs

Mosfellsbær leitar að drífandi og skapandi einstaklingi í fjölbreytt starf verkefnastjóra viðburða og Hlégarðs.

Starfið felur í sér verkefnastjórn og framkvæmd viðburða á vegum Mosfellsbæjar ásamt umsjón og áframhaldandi þróun félagsheimilisins og menningarhússins Hlégarðs sem vettvangs fyrir menningu, viðburði og samfélagsstarf. Leitað er að einstaklingi með trausta reynslu af verkefnastjórnun, ríkt frumkvæði og metnað til að þróa starfsemina og skapa ný tækifæri. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskipta- og samstarfshæfni og njóti þess að vinna með fjölbreyttum hópi fólks og samstarfsaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórn, skipulagning og framkvæmd viðburða og hátíða á vegum Mosfellsbæjar.
  • Umsjón með starfsemi Hlégarðs og áframhaldandi þróun hússins sem lifandi vettvangs fyrir menningu, viðburði og samfélagsstarf.
  • Dagskrárgerð og frumkvæði að nýjum viðburðum og menningarverkefnum.
  • Umsjón með bókunum og útleigu Hlégarðs og fagleg þjónusta við viðskiptavini og aðra notendur hússins.
  • Rekstraráætlanagerð og samhæfing viðburða, m.a. m.t.t. kostnaðar, samninga, mönnunar, undirbúnings og eftirfylgni.
  • Uppbygging og efling samstarfs við listafólk, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og aðra samstarfsaðila.
  • Þátttaka í kynningu og markaðssetningu viðburða og starfsemi Hlégarðs.
  • Önnur verkefni tengd menningar- og viðburðahaldi á forræði menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Traust reynsla af verkefnastjórnun og skipulagningu og framkvæmd viðburða. Reynsla af menningarstarfi er kostur.
  • Mjög góð skipulags- og verkefnastjórnunarhæfni og geta til að leiða verkefni sjálfstætt frá hugmynd til framkvæmdar.
  • Reynsla af áætlanagerð, kostnaðareftirliti og eftirfylgni verkefna.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks og samstarfsaðila.
  • Frumkvæði, hugmyndaauðgi og metnaður til að þróa starfsemi og skapa ný tækifæri.
  • Sjálfstæði, lausnamiðuð nálgun og hæfni til að forgangsraða og takast á við fjölbreytt verkefni og breytilegar aðstæður.
  • Reynsla af kynningar- og markaðsstarfi og samfélagsmiðlum er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg og góð enskukunnátta æskileg.
Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Félagsheimilið og menningarhúsið Hlégarður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar