
Austurbæjarbíó
Austurbæjarbíó hefur verið félagsheimili Reykjavíkur í 80 ár: 1.700 fermetrar af fjöri, pílum, mat og lifandi tónlist.

Markaðs- og viðburðafulltrúi
Austurbæjarbíó er eitt sögufrægasta tónleika- og viðburðahús landsins og Bullseye er líflegur pílu- og karaoke staður í sama húsi við Snorrabraut. Við erum hluti af Faxaflóa, sem rekur einnig Röntgen, Skreið og tónlistarhátíðina Innipúkann.
Við leitum að skapandi einstaklingi í fullt starf sem hefur auga fyrir góðu efni og brennandi áhuga á menningu og viðburðum. Starfið er fjölbreytt og við viljum að það mótist að styrkleikum þess sem við ráðum. Ef þú ert hugmyndarík/ur og hefur kraft til að hrinda hugmyndum í framkvæmd, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Efnisgerð og umsjón með samfélagsmiðlum staðanna
- Tengslamyndun við listafólk, umboðsaðila, tónleikahaldara og fyrirtæki
- Sala og bókanir, meðal annars hópabókanir, fyrirtækjaviðburðir og tónleikar
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem:
- hefur reynslu af viðburðahaldi, efnisgerð, sölu eða sambærilegu
- er með færni í ljósmyndun, myndbandagerð og klippingu
- á auðvelt með samskipti og nýtur þess að byggja upp tengsl
- er skipulagður, sjálfstæður og hefur frumkvæði
- hefur gott auga fyrir efni og tilfinningu fyrir því hvað virkar á samfélagsmiðlum
- hefur gott vald á íslensku og ensku
Kostir:
- tengslanet í menningar- og viðburðabransanum
- reynsla af bókunum listafólks eða tónleikahaldi
- reynsla af B2B sölu eða samningagerð
- þekking á auglýsingakerfum samfélagsmiðla
- reynsla af vefumsjón, t.d. WordPress
- getur sýnt fram á árangur í efnisgerð fyrir samfélagsmiðla
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á:
- Spennandi og fjölbreytt starf í skapandi umhverfi
- Tækifæri til að móta starfið og hafa raunveruleg áhrif
- Frábært samstarfsfólk og lifandi vinnustað í hjarta Reykjavíkur
Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Snorrabraut 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AðlögunarhæfniDrifkrafturFacebookHugmyndaauðgiInstagramLjósmyndunMarkaðssetning á netinuSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTikTokViðburðastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (8)

Birtingastjóri á Tvist
Tvist vörumerkjastofa

Marketing Manager
Laki Power

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Birtingasérfræðingur
Kontor Auglýsingastofa ehf

Pikkoló leitar að skapandi samfélagsmiðlafulltrúa!
Pikkoló ehf.

Head of Education
50skills

Education Producer
50skills

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands