Petmark ehf
Petmark ehf
Petmark ehf

Dýralæknir / fagráðgjafi í heilbrigði og velferð dýra

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum dýralækni eða einstaklingi með sambærilega menntun sem hefur áhuga á að nýta þekkingu sína í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi. Starfið felur meðal annars í sér ráðgjöf til viðskiptavina og samstarfsaðila ásamt fagumsjón með ræktendaklúbbi Petmark. Viðkomandi gegnir mikilvægu hlutverki í að miðla þekkingu, efla tengsl við ræktendur og tryggja faglega og góða þjónustu Petmark.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita ráðgjöf um vörur, næringu, heilbrigði og velferð dýra

Umsjón og áframhaldandi þróun ræktendaklúbbs Petmark

Samskipti og tengslamyndun við ræktendur, viðskiptavini og aðra samstarfsaðila

Miðlun þekkingar og upplýsinga, bæði innan fyrirtækisins og til viðskiptavina

Stuðningur og fræðsla fyrir sölu- og þjónustuteymi Petmark

Þátttaka í kynningum, fræðslu og öðrum verkefnum tengdum vörum og þjónustu fyrirtækisins

Önnur fjölbreytt verkefni eftir þörfum

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun í dýralækningum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

Góð þekking á heilbrigði, næringu og velferð dýra

Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum

Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

Hæfni til að miðla þekkingu á skýran og aðgengilegan hátt

Góð íslensku- og enskukunnátta

Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Koparslétta 16
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar