
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda og Peugeot ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu og þjónustu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, langtíma- og sendibílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 250 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 30 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls níu verkstæði.

Sala varahluta - Akureyri
Brimborg, sem er í hópi stærstu bílaumboða landsins leitar að sölu- og þjónustufulltrúa fyrir varahluti og hjólbarða hjá Brimborg á Akureyri.
Við bjóðum uppá
- Góðan starfsanda, öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf.
Metnaðarfulla stjórnun
Brimborg er stolt af að vera:
- Fyrirmyndarfyrirtæki í starfsnámi Nemastofu 2025
- Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2024 og 2025
- Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo 2024
- Jafnalaunavottað fyrirtæki
- Brautryðjandi í styttingu vinnutímans
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala varahluta og aukahluta
- Sala hjólbarða
- Móttaka viðskiptavina í síma, rafrænt og á staðnum
- Gera verðtilboð
- Fylgja eftir útistandandi sölupöntunum
- Skrifa út sölureikninga
- Panta varahluti, aukahluti og hjólbarða
- Taka á móti vörum
- Pakka vörum
- Dreifa vörum
- Auk annarra tilfallandi starfa
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, iðnmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð þekking á bílum og tækjum
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
- Snyrtimennska og stundvísi
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Færni í notkun upplýsingakerfa Windows, reynsla í CRM/Navision/Dynamics er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vöru- og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Afmælisfrídagur
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tryggvabraut 5, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Almannatengsl (PR)Dynamics NAVMicrosoft CRMNavisionÖkuréttindiSölumennskaStundvísiWindowsÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Sölufulltrúi í varahlutaverslun
Klettur - sala og þjónusta ehf

Sölumaður notaðra bíla
Bílalíf bílasala

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson