
Dropp
Dropp bætir upplifun viðskiptavina þegar þeir versla á netinu. Þjónusta Dropp gerir netverslunum fært að bjóða upp á fyrsta flokks afhendingarþjónustu.
Hjá Dropp starfa um 70 manns í fjölbreyttum störfum. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og jákvæðan og góðan starfsanda.

Þjónustufulltrúi (tímabundið starf)
Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til að ganga til liðs við þjónustuteymi Dropp.
Um er að ræða tímabundið starf frá 1. október til 30. desember eða 15. janúar, eftir samkomulagi.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 9:00-17:00. Möguleiki er á aukavinnu á kvöldin og um helgar á álagstímum í nóvember og desember.
Umsóknir eru afgreiddar jafnóðum, við hvetjum þig til að sækja um sem fyrst.
Allar umsóknir fara í gengum Alfreð.is.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við einstaklinga í tölvupósti og síma
- Þjónusta við netverslanir í tölvupósti og síma
- Tækniaðstoð (fyrst og fremst aðstoð með Shopify og WooCommerce)
- Samskipti við aðra samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á netverslun og tækni
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í starfi
- Góð þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðhorf og hæfni til að vinna í teymi
- Hæfni til að tileinka sér nýja hluti hratt
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur11. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Blikastaðavegur 2-8 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

Fjármálasérfræðingur
BYKO

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan