
Teitur
Teitur er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í ferðaþjónustu, stofnað árið 1963.
Fyrirtækið rekur yfir 100 hópferðabíla í öllum stærðarflokkum og þjónustar bæði erlenda og innlenda farþega.
Árið 2024 tók Teitur á móti um 63.000 ferðamönnum í 1.800 hópum, aðallega frá Asíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi og Norðurlöndunum. Þá ferðast einnig árlega fjöldi Íslendinga með fyrirtækinu, meðal annars í hópferðum, skólaakstri og ferðaþjónustu fatlaðra og eldri borgara.
Verkstæði fyrirtækisins er vel búið og uppfyllir allar nútímakröfur, þar á meðal með fullkomnum bilanagreiningarbúnaði.
Einkunnarorð Teits eru þjónusta, traust og ánægja, og fyrirtækið hefur verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2013.

Símsvörun - þjónustuver
Starfsmaður óskast í þjónustuver vegna ferðaþjónustu fatlaðra og aldraðra
Teitur Jónasson ehf. leitar eftir starfsmanni í þjónustuver fyrir ferðaþjónustu fatlaðra og eldriborgara.
Um er að ræða fullt starf auk helgarvinnu eftir þörfum.
Þjónustuverið er opið frá 8:00-16:00 á virkum dögum og um helgar frá 7:00-14:00.
Viðkomandi þarf að vera íslenskumælandi, með góða samskiptahæfni og með ríka þjónustulund og þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Hildur í síma 515 2707 eða [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka pantana og fyrirspurna
- Samskipti við viðskiptavini
- Umsjón með daglegri skráningu
- Viðbrögð við kvörtunum og athugasemdum
- Samskipti við bílstjóra og verkstjóra
- Eftirfylgni með tímamörkum og breytingum
- Skjölun og skýrslugerð
- Samvinna við aðra starfsmenn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Nákvæm vinnubrögð
- Getur unnið undir álagi
- Reynsla af sambærilegum störfum kostur
- Góð íslensku og enskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt2. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 22, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiVandvirkniÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Skrifstofustarf hjá garðyrkjufyrirtæki
Hreinir Garðar ehf

Tryggingaráðgjafi
Landsbankinn

Fulltrúi á háskólaskrifstofu - tímabundin staða
Háskólinn í Reykjavík

Skrifstofustarf
Bayern líf

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Solutions Consultant with Icelandic and English - Relocation Assistance
TELUS Digital Bulgaria

Tryggingaráðgjafi í Vestmannaeyjum
Landsbankinn

Starfsmaður í þjónustuver hjá Umbru- þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins

Sérfræðingur
Útlendingastofnun

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Höfuð-borgin sértæk félagsmiðstöð

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Deildarstjóri yfir sjálfstæðri búsetu
Sólheimar ses.