

Deildarstjóri yfir sjálfstæðri búsetu
Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra til starfa sem fyrst í þjónustu við íbúa í sjálfstæðri búsetu. Um er að ræða eina af þremur stöðum deildarstjóra á Búsetusviði.
Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu, en möguleiki á tilfallandi vöktum.
Í sjálfstæðri búsetu búa 24 fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir og stöðugildin 7.
Starfsfólk vinnur eftir þjónandi leiðsögn, hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu- og starfsáætlunum. Deildarstjóri vinnur í samræmi við lög og reglur í málefnum fatlaðra.
Deildarstjóri tekur þátt í að leiða uppbyggjandi starf í þessari þjónustueiningu og leggur sig fram við að skapa jákvæða og öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukinna lífsgæða fyrir íbúana.
- Skipuleggja faglegt starf í samráði við forstöðumann Búsetusviðs
- Daglegur rekstur þjónustueiningarinnar
- Kemur að starfsmannamálum og vaktaskýrslugerð í samvinnu við forstöðumann.
- Leiðir innra starf á heimilum í samráði við forstöðumann
- Ber ábyrgð á að framkvæmd þjónustunnar sé samkvæmt fyrirliggjandi þjónustuáætlunum og í samræmi við lög og reglur
- Stuðlar að jákvæðum starfsanda og liðsheild og að starfsemin sé í anda gilda Sólheima
- Menntun sem nýstist í starfi, s.s. þroskaþjálfanám eða félagsliðanám
- Reynsla af vinnu með fötluðum einstaklingum nauðsynleg
- Reynsla af umönnun mikilvæg
- Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun æskileg
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Reglusemi áskilin
- Almenn góð tölvukunnátta nauðsynleg
- Starfsmaður skal hafa hreint sakarvottorð
- Bílpróf nauðsynlegt
- Starfsmaður þarf að starfa í samræmi við gildi Sólheima
- Aðgangur að líkamsrækt og sundlaug, niðurgreiddur hádegisverður virka daga og möguleiki á hagstæðu húsnæði.
Íslenska










