
Frístundamiðstöðin Þorpið
Þorpið leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf þar sem lögð er áhersla á forvarnir. Í gegnum þetta starf er börnum og ungmennum beint inn á braut heilbrigðis og jákvæðs lífernis. Þorpið leggur metnað sinn í að veita faglega og umfangsmikla þjónustu og vinnur í nánu samstarfi við börn og ungmenni, foreldra og frjáls félagasamtök.
Frístundaleiðbeinandi
Frístundamiðstöðin Þorpið óskar eftir að ráða inn leiðbeinendur í frístundastarf sem fram fer að skóla loknum til kl. 16:00 alla virka daga.
Um er að ræða 25% - 44,44% hlutastarf;
13:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga
12:00 - 16:00 á föstudögum.
Vettvangur starfsemi Þorpsins er frítími og forvarnir og er megin áhersla lögð á inngildandi barna- og ungmennastarf. Í allri starfsemi Þorpsins er gert ráð fyrir margbreytileika mannlífsins og lögð er áhersla á að hver og einn geti fengið hvatningu og stuðning til þess að stunda frístundastarf við hæfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á frístundastarfi í samvinnu við deildarstjóra, börn og ungmenni
- Styðja við og efla börn og ungmenni í þátttöku
- Samráð og samvinna við börn, ungmenni og samstarfsfólk
- Stuðla að virkri þátttöku barna og ungmenna í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Jákvæðni og metnaður
- Færni og lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt27. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þjóðbraut 13, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi óskast í Seyðisfjarðarskóla.
Seyðisfjarðarskóli

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður Íþróttafélagsins Þingeyings
Íþróttafélagið Þingeyingur

Félagsliði í sértækri heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Skóla- og frístundaliði - frístundaheimilið Álfakot Engidalsskóla
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Skemmtileg hlutastörf í frístundaheimilum í Grafarholti og Grafarvogi
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir