
Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal, Þingeyjarsveit leitar að áhugasömum leikskólakennara í framtíðarstarf. Barnaborg er hluti af Þingeyjarskóla, samreknum grunn- og leikskóla í Þingeyjarsveit. Í starfi skólans er lögð áhersla á að hlúa að sjálfsprottnum leik barnanna, öruggum tengslum barna við umönnunaraðila og virðingu fyrir öllum í leikskólastarfinu. Í skólanum er unnið eftir stefnunni um jákvæðan aga og innleiðing Heillaspora að hefjast. Sjá nánar á: thingeyjarskoli.is
• Um er að ræða 80-100% framtíðarstarf
• Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
• Húsnæði í boði í nágrenni skólans
• Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember 2026
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans.
• Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk nemenda.
• Taka þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við yfirmann.
• Sinna verkefnum er varða uppeldi og menntun nemenda sem yfirmaður felur honum.
• Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót í starfi með börnum.
• Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra.
• Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
• Hreint sakavottorð (fylgi umsókn)
• Heilsueflingarstyrkur Þingeyjarsveitar til starfsfólks sveitarfélagsins
• Gott jóla- og páskafrí.
• Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí t.d. í dymbilviku og milli jóla- og nýárs.
• Sveitarfélagið hefur innleitt 4-5 skráningardaga á hverju starfsári sem gefur aukið svigrúm til undirbúnings og samráðs um vinnuna.
Íslenska










