Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólinn Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 107 börnum. Aðal áhersla er lögð á að börnunum líði vel og blómstri í leikskólanum. Við horfum til hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem börnum er gefið frelsi til sköpunar og leiks í fallegu og hvetjandi umhverfi.

Leikskólinn er í innleiðingu nýju menntastefnu Reykjavíkurborgar með aðaláherslu á félagsfærni og sjálfseflingu þar sem við styðjumst við jákvæðan aga sem við erum einnig að innleiða. Einkunnarorð og gildi leikskólans eru virðing-sköpun-gleði-jafnrétti.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.

- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.

- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.

- Sinna þeim verkefnum er varðar sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfamenntun, leikskólasérkennaramenntun, eða önnur sambærileg menntun.

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.

  • Reynsla af sérkennslu er æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og starfi.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort
  • Samgögnustyrkur
  • Sundkort
  • Heisuræktarstyrkur
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Auglýsing birt14. október 2026
Umsóknarfrestur27. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kristnibraut 26, 113 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar