
Snemmtæk íhlutun - Sérkennsla - Leikskólinn Reynisholt
Við í leikskólanum Reynisholti óskum eftir að ráða til okkar starfsmann í sérkennslu tengt snemmtækri íhlutun, meðal verkefna í starfnu er málörvun og atferlismótun.
Sérkennari óskast í leikskólann Reynisholt. Starfið felur í sér að sinna málörvun og atferlismótun fyrir þau börn í leikskólanum sem þess þurfa. Um er að ræða spennandi starf fyrir áhugasaman einstakling um sérþarfir ungra barna.
Viðkomandi myndi fá leiðbeiningar og stuðning frá sérkennslustjóra leikskólans. Starf viðkomandi heyrir undir sérkennsludeild leikskólans.
Um er að ræða hlutastarf eða fullt starf í skemmtilegum starfsmannahópi. Viðkomandi getur byrjað strax eða eftir samkomulagi.
Í leikskólanum er lögð áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu, jóga, umhverfismennt og bernskulæsi.
Í Reynisholti dvelja samtímis 77 börn á fjórum deildum.
Kjörorð leikskólans eru fagmennska, virðing og vellíðan.
-
Að sinna þeim verkefnum er varða málörvun og atferlismótun í sérkennsluteymi leikskólans og að vinna eftir ráðleggingum sérkennslustjóra um umönnun og stuðning.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Reynsla af uppeldisstörfum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenska B1 skv. samevrópska tungumálarammanum
- 36 stunda vinnuvika
- sundkort
- menningarkort
- Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mán. í starfi
- afsláttur af dvalargjaldi
- samgöngusamningur
- frír hádegismatur
- forgangur í leikskóla.
Íslenska










