Avians
Avians
Avians

Viltu móta framtíðina í þjálfun flugleiðsöguþjónustu – leitum eftir kennsluráðgjafa

Þjálfun Avians leitar að öflugum og metnaðarfullum kennsluráðgjafa sem vill taka virkan þátt í að móta framtíð þjálfunar í flugleiðsöguþjónustu. Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og áhrifamikið starf hjá framsækinni þjálfunardeild sem ber ábyrgð á ný- og síþjálfun um 300 sérfræðinga, þar á meðal flugumferðarstjóra, flugfjarskiptamanna, fluggagnafræðinga og tæknifólks.

Kennsluráðgjafi gegnir lykilhlutverki í að þróa og styrkja kennsluhætti, efla faglegt kennsluumhverfi og styðja við stöðuga nýliðun og færniþróun innan greinarinnar. Mikilvægur hluti starfsins er jafnframt þróun og stafræn hönnun námsefnis, þar sem nýjar aðferðir og tækni eru nýttar til að skapa fjölbreytta, aðgengilega og árangursríka þjálfun. Starfið felur í sér náið samstarf við kennara, þjálfunarstjóra og stjórnendur, þar sem unnið er markvisst að framtíðarsýn þjálfunar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á kennslu og faglegri þróun, hefur áhuga á stafrænni miðlun og þróun námslausna, nýtur þess að vinna með fólki og vill leggja sitt af mörkum til að efla og móta öflugt og nútímalegt kennsluumhverfi til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við sérfræðinga við gerð námsefnis og skipulagningu þjálfunar
  • Gerð og þróun námsefnis og leiðbeininga á sviði kennslu og þjálfunar
  • Kennslufræðileg þróun, ráðgjöf og stuðningur við kennara og þjálfunarstjóra
  • Ráðgjöf til stjórnenda varðandi skipulag fræðslu, kennsluhætti og miðlun upplýsinga
  • Framkvæmd kennslumats og eftirfylgni með gæðum, samræmi og varðveislu námsefnis
  • Samskipti og upplýsingagjöf varðandi kennslu og nám innan þjálfunardeildar
  • Utanumhald vegna skjölunar og samskipti við eftirlitsstofnanir
  • Þátttaka í verkefnum deildarinnar, m.a. við skipulagningu kennsluhalds, prófa, skráningar o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á gerð stafræns kennsluefnis mikill kostur
  • Reynsla af kennsluráðgjöf, þróun kennsluhátta eða sambærilegu starfi kostur
  • Þekking og reynsla af skipulagningu fræðslu og kennslu
  • Reynsla af fjarkennslu- og námsumsjónarkerfum
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til miðlunar upplýsinga á árangursríkan hátt
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð og mikill drifkraftur
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar