Garðabær
Garðabær
Garðabær

Garðahraun auglýsir eftir stuðningsfulltrúum

Frístundaklúbburinn Garðahraun auglýsir eftir starfsfólki.

Opnunartími Garðahrauns er frá 13:00 – 16:30 alla virka daga.

Í boði eru hlutastörf og tímavinnustörf með vinnutíma eftir hádegi eftir samkomulagi. Þetta starf hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.


Garðahraun er sértækt frístundarúrræði fyrir börn með fötlun í 5.-10.bekk í grunnskólum Garðabæjar og staðsett við Álftanesskóla. Markmið frístundarinnar er að veita börnum sem þar dvelja öruggt athvarf og bjóða þeim upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Lögð er áhersla á virðingu fyrir einstaklingnum, fagleg vinnubrögð, jákvæð samskipti og foreldrasamstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að styðja nemendur með sérþarfir
  • Að stuðla að jákvæðu umhverfi barna og vera öðrum fyrirmynd
  • Að efla velferð og félagslegan þroska barnanna
  • Að fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
  • Samráð og samvinna við börn, foreldra, samstarfsfólk og aðra sem koma að frístundarstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Jákvæðni og ábyrgðarkennd
  • Frumkvæði og lausnamiðað viðhorf
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
    Auglýsing birt27. ágúst 2026
    Umsóknarfrestur9. september 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    Staðsetning
    Breiðumýri, 225 Breiðumýri
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar