
Bílaumboðið Una
Bílaumboðið Una er umboðs- og þjónustuaðili fyrir XPENG á Íslandi. Una er systurfyrirtæki Bílaumboðsins Öskju og 100% í eigu Vekru sem er móðurfyrirtæki beggja fyrirtækja. XPENG var stofnað árið 2014 og framleiðir eingöngu 100% rafbíla. Vörulína XPENG í Evrópu samanstendur af þremur gerðum, G6, G9 og P7, en einnig eru framleiddar fleiri gerðir fyrir heimamarkað. Höfuðstöðvar XPENG í Evrópu eru í Amsterdam.

Söluráðgjafi XPENG hjá Bílaumboðinu Unu
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi aðila til að sinna starfi söluráðgjafa hjá Bílaumboðinu Unu. Una er bílaumboð sem selur og þjónustar bíla frá kínverska bílaframleiðandanum XPENG. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi starfsumhverfi.
Una er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Söluráðgjöf
- Móttaka viðskiptavina, símsvörun og svörun tölvuskilaboða
- Framsetning bíla, verðmerkinga og annars efnis á sýningarsvæði
- Úthringiverkefni
- Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð
- Þátttaka í verkefnum sem tengjast sölu og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölustörfum kostur
- Frumkvæði í starfi
- Rík þjónustulund og samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð og vilji til að ná árangri í starfi
- Fagmennska og jákvæðni
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
- Gild ökuréttindi
Auglýsing birt3. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vínlandsleið 6-8, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Sölufulltrúi í varahlutaverslun
Klettur - sala og þjónusta ehf

Starfsmaður í blómaheildverslun
Samasem ehf

Sölumaður notaðra bíla
Bílalíf bílasala

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Söluráðgjafi í Fagmannaverslun
Húsasmiðjan