

Viðskiptastjóri innflutnings
Samskip leitar að drífandi viðskiptastjóra með mikla þjónustulund til starfa á innflutningssviði fyrirtækisins.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á viðskiptum, sölu og þjónustu og vill taka þátt í að efla tengsl við viðskiptavini Samskipa. Viðkomandi sinnir samskiptum við viðskiptavini, vinnur að lausnum sem mæta þörfum þeirra og á í góðu samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og kynning á þjónustu innflutnings ásamt þjónustu og eftirfylgni við smærri og meðalstóra viðskiptavini.
- Svara fyrirspurnum og veita upplýsingar um þjónustu og flutningalausnir félagsins.
- Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við viðskiptavini.
- Greina þarfir viðskiptavina og vinna að viðeigandi lausnum.
- Vinna að þróun núverandi viðskiptasambanda og nýjum viðskiptatækifærum.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, ásamt reynslu af viðskiptastýringu, sölu eða þjónustu við fyrirtæki er kostur.
- Sterk viðskiptavitund og hæfni til að byggja upp og viðhalda traustum viðskiptasamböndum.
- Reynsla af samningagerð og eftirfylgni með viðskiptavinum.
- Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
- Greiningarhæfni, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Góð tölvukunnátta, færni í notkun Excel og reynsla af CRM-kerfum.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Við bjóðum
- Áhugavert starf hjá leiðandi alþjóðlegu flutningafyrirtæki.
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun viðskiptasambanda og þjónustu.
- Fjölbreytt verkefni og gott samstarf innanlands og erlendis.
- Nútímalegt vinnuumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, frumkvæði og árangur.
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ítarlegri ferilskrá ásamt greinargóðu kynningarbréfi þar sem fram kemur með skýrum hætti hvernig þeir uppfylla kröfur um menntun, reynslu og eiginleika.
Umsóknum skal skilað í gegnum ráðningarvef Samskipa, umsóknarfrestur er til og með 10. september.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Andrésson, sölustjóri innflutnings, [email protected].
Samskip eru kraftmikill og líflegur vinnustaður þar sem um 500 manns vinna við mjög fjölbreytt störf. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda og jákvæð samskipti. Við bjóðum upp á frábært mötuneyti, líkamsræktarsal með stöðvaþjálfun og jóga, nudd einu sinni í viku, læsta hjólageymslu, barnaherbergi og margt fleira sem gerir vinnustaðinn fyrsta flokks.
Íslenska
Enska










