

Viðskiptastjóri verklegra framkvæmda
Viðskiptastjóri ber ábyrgð á að samningar í fjárfestingarverkefnum séu skýrir, mælanlegir og í samræmi við skilmála og stefnu og undirstefnur fyrirtækisins, svo sem í umhverfis- og öryggismálum.
Viðskiptastjóri heyrir undir svið sjálfbærni og aðfanga en vinnur náið með öllum sviðum fyrirtækisins og er hluti af verkefnateymum í framkvæmdarverkum. Viðskiptastjóri gegnir veigamiklu hlutverki við innleiðingu skilvirkra verkferla þar með eftirfylgni með tíma- og fjárhagsáætlunum sem og í samskiptum við verktaka og birgja þegar upp kemur faglegur ágreiningur í samningum.
Frekari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].
-
- Móta samningastefnu í verkefnum.
- Hafa yfirumsjón með gerð samninga.
- Innleiða viðskipta- og samningsstjórnun hjá HS Orku.
- Tryggja að samningar uppfylli skilyrði og stefnu HS Orku.
- Tryggja að samningar séu mælanlegir, skýrir og í samræmi við samningsákvæði.
- Ferla eftirfylgni með verk- og fjárhagsstöðu verkefna í rauntíma.
- Greina tækifæri til framfara.
- Túlkun samninga og samskipti við verktaka og birgja á verktíma.
Við leitum að einstaklingi sem hefur skilning á verklegum framkvæmdum og reynslu af gerð verksamninga og samninga um kaup á vélum og búnaði. Viðkomandi þarf að hafa auga fyrir smáatriðum, vera lausnamiðaður, sjálfstæður, hafa þróað með sér öguð vinnubrögð og færni í samningatækni og eiga auðvelt að vinna í verkefnateymum.
Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg.
Menntun sem nýtist í starfi er nauðsynleg.
Íslenska










