Reiknistofa bankanna
Reiknistofa bankanna
Reiknistofa bankanna

Fyrirliði sjálfsafgreiðslutækja og uppgjöra á Reiðufjársviði RB

Við erum að styrkja hópinn okkar og leitum að öflugum einstaklingi með áhuga á rekstri sjálfsafgreiðslutækja, uppgjörum og afstemmingum reiðufjárþjónustu.

Hlutverk fyrirliða er að leiða og samræma daglega þjónustu við sjálfsafgreiðslutæki og uppgjör á Reiðufjársviði RB. Starfið felur meðal annars í sér þjónustuvöktun, afstemmingar, eftirlit með sameiginlegum reiðufjársjóði, lausafjárstýringu og eftirfylgni þjónustufrávika. Við leitum að lausnamiðuðum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, forgangsraðað verkefnum og leitt faglegt samstarf við innri og ytri hagsmunaaðila.

Fram undan eru spennandi verkefni sem tengjast þróun og umbótum á þjónustu við sjálfsafgreiðslutæki og sameiginlegan reiðufjársjóð.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem vill takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu teymi.

Helstu verkefni

Leiðir og samræmir daglega þjónustu við sjálfsafgreiðslutæki, fylgist með þjónustugæðum og tryggir skilvirka úrlausn bilana og þjónustufrávika.

Ber ábyrgð á daglegum uppgjörum og afstemmingum, tryggir gæði og rekjanleika ferla og leiðir greiningu og úrlausn mismuna og frávika.

Ber ábyrgð á daglegu eftirliti með sameiginlegum reiðufjársjóði, fylgist með birgðastöðu og styður við lausafjárspár og áætlanagerð svo hægt sé að mæta þjónustuþörf.

Fylgir eftir þjónustustigum og tryggir reglubundna upplýsingagjöf og byggir upp öflugt samstarf við banka, þjónustuaðila, kerfisbirgja og lykilstoðdeildir RB.

Megin verkefni til loka árs 2027 er þátttaka í samrekstrarverkefni hraðbanka hjá RB í samstarfi við íslensku bankanna.  

Hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Reynsla af þjónustukerfum og af uppgjörum, afstemmingum eða fjármálalegum rekstri er æskileg en ekki nauðsynleg.

Frumkvæði, góð greiningarhæfni, talnalæsi og sjálfstæð vinnubrögð.

Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni.

Góð færni í íslensku og ensku.

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur hvetjum við þig engu að síður til að sækja um. Þú gætir verið nákvæmlega sá einstaklingur sem við leitum að, í þetta eða annað starf hjá RB.

RB er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður með sterka vinnustaðamenningu þar sem starfsfólki gefst tækifæri til að læra, vaxa og þróast í starfi. Starfsánægja hefur verið há um árabil og endurspeglar metnað okkar til að hlúa vel að starfsfólki.

RB er fjölskylduvænn vinnustaður sem leggur áherslu á velferð starfsfólks og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur hvers vegna þú hefur áhuga á starfinu og hvernig reynsla þín, þekking og hæfni nýtast í hlutverkinu.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2027.

Nánari upplýsingar veitir Aníta Björg Jónsdóttir, forstöðumaður á Reiðufjársviði RB, sími 856 5913, netfang [email protected] Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur16. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar