
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi og gæðamálum
Brennur þú fyrir upplýsingaöryggi og gæðamálum?
VÍS leitar að öflugum aðila í teymi upplýsingaöryggis og gæðamála. Teymið hefur það hlutverk að bera ábyrgð á stjórnkerfi upplýsingaöryggismála og styðja við stefnu og rekstur félagsins í gæðamálum. Viðkomandi þarf að hafa framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til að drífa verkefni áfram.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með gæðahandbók
- Sinnir tæknilegri hlið gæðakerfis í SharePoint
- Eftirfylgni og umsjón með fræðsluefni til starfsfólks í tengslum við upplýsingaöryggi
- Ýmis verkefni tengd upplýsingaöryggi s.s. úttektir, aðgangsmál, innleiðingarverkefni, áhættugreiningar o.fl.
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Þekking og skilningur á upplýsingatækni
- Skipulag og fagmennska í vinnubrögðum
- Þekking á kröfum skv. ISO 27001 er kostur
- Þekking á Jira verkbeiðnakerfi og SharePoint er kostur
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Heilsufarsskoðun og bólusetningu
- Virkt starfsmannafélag sem býður m.a. upp á golfklúbb og aðgang að orlofshúsum
Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri framkvæmda - hafnarmannvirki
Umhverfissvið

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA hf

Research and Development Engineer
HYDRAM rannsóknir ehf.

Sérfræðingur í fjármálum
ÍSOR

Sérfræðingur á fjármálasviði
Eignaumsjón hf

Verk- og tæknifræðingar
Verkfræðistofa Suðurnesja

Do You Want to Shape the Future of Maritime Safety?
Samgöngustofa

Viltu móta framtíð siglingaöryggis?
Samgöngustofa

Verkfræðingur eða tæknifræðingur í iðnaðardeild
Norconsult Ísland ehf.

Byggingarverk- eða tæknifræðingur á framkvæmdasviði
Norconsult Ísland ehf.

Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Fjarskiptastofa

Séní í stafrænum vexti og vef
Nova