
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi. Fyrirtækið var stofnað haustið 2000 og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Gildi Eignaumsjónar eru framsækni, öryggi og fagmennska og markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu þar sem áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla.
Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda. Hjá okkur starfa nú um 50 einstaklingar, öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr teymavinnu og góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og umhverfi sem öllum líði vel í. Vinnan er bæði krefjandi og skemmtileg og liðsheildin góð, sem skilar sér í árangri og líflegu vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fagmennsku. Eignaumsjón leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem efla það og styrkja. Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum.

Sérfræðingur á fjármálasviði
Við hjá Eignaumsjón óskum eftir að ráða sérfræðing á fjármálasvið félagsins.
Vegna aukinna umsvifa leitum við að áhugasömum og lífsglöðum liðsfélaga á fjármálasvið félagsins. Umsækjandi þarf að hafa gaman af tölum og vera tilbúinn til þess að auka getu sína í lifandi starfsumhverfi með góðum samstarfsfélögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð og yfirferð ársreikninga fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
- Framkvæmd rekstraruppgjöra
- Greiningar á fjármálum, rekstrarkostnaði og öðrum tölulegum gögnum
- Afstemmingar bókhalds
- Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi bókhald, reikninga, kostnaðarskiptingu, innheimtu og áætlanir
- Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
- Önnur fjölbreytt dagleg störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði fjármála-/viðskiptafræði eða sambærileg menntun
- Marktæk starfsreynsla af sambærilegum störfum
- Mjög góð Excel kunnátta
- Góð bókhaldsþekking
- Greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð
- Metnaður og vilji til að takast á við krefjandi og fjölbreytt störf
- Áhersla lögð á drifkraft, frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð
- Viðkomandi þarf einnig að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Íþróttastyrkur
- Fræðslustyrkur
- Öflugt félagslíf á skemmtilegum vinnustað
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingÁrsreikningarFjárhagsáætlanagerðMicrosoft ExcelUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í fjármálum
ÍSOR

Skrifstofustarf á Akureyri
Frost

Séní í stafrænum vexti og vef
Nova

Bókari
Vélrás

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Endurskoðandi framtíðarinnar
Deloitte

Bókari
Rafholt ehf.

Bókari / Sérfræðingur á fjármálasviði MyGroup
Konvin / MyGroup

Forstöðumaður sölu á veitingamarkaði
Coca-Cola á Íslandi

Viðskiptastjóri á matvörumarkaði
Coca-Cola á Íslandi

Senior Product Manager for Weighing & Grading
JBT Marel

Bókari til PwC á Akureyri eða Húsavík
PwC