
Bókari
VélRás leitar að reynslumiklum og áreiðanlegum bókara til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og hefðbundið bókhaldsstarf fyrir einstakling sem hefur góða þekkingu á dk bókhaldskerfi og nýtur þess að vinna sjálfstætt og skipulega að verkefnum daglegs rekstrar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn bókhaldsvinna í dk
- Skráning og bókun reikninga
- Viðskiptabókhald og afstemmingar
- Umsjón með viðskipta- og lánardrottnum
- Greiðslur og eftirfylgni
- Afstemming banka og bókhaldslykla
- Undirbúningur gagna fyrir uppgjör
- Önnur tilfallandi verkefni tengd bókhaldi og fjármálum
Hæfniskröfur
- Góð reynsla af bókhaldsstörfum
- Mjög góð þekking og reynsla af dk hugbúnaði
- Góð almenn tölvukunnátta, þ.á.m. í Excel
- Góð samskiptafærni
- Frumkvæði, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Um VélRás
VélRás ehf. er vélaverkstæði sem hefur sérhæft sig í þjónustu við eigendur vinnuvéla og vörubíla. Starfsmenn fyrirtækisins búa yfir áralangri og sérhæfðri reynslu til að fást við flest þau verkefni sem koma hjá viðskipvinum okkar. VélRás hefur yfir að ráða 5.000 m2 vel útbúnu verkstæði ásamt sérútbúnum þjónustubílum til að veita fulla þjónustu á vettvangi hvar á landi sem er.
VélRás er systurfélag Vélanaust og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).
Íslenska
Enska










