Vélrás
Vélrás

Gjaldkeri og innheimtufulltrúi

VélRás leitar að skipulögðum og nákvæmum gjaldkera og innheimtufulltrúa til starfa. Meginverkefni starfsins felast í að fylgjast með útistandandi kröfum, sinna innheimtu og tryggja markvissa eftirfylgni með greiðslum.

Starfið hentar vel einstaklingi sem vinnur sjálfstætt og skipulega, hefur góða samskiptahæfni og á auðvelt með að halda utan um verkefni sem krefjast nákvæmni og reglulegrar eftirfylgni.

Helstu verkefni

  • Eftirlit og eftirfylgni með útistandandi kröfum
  • Samskipti við viðskiptavini vegna greiðslna og vanskilamála
  • Útsending greiðsluáminninga og eftirfylgni með þeim
  • Skráning greiðslna og afstemmingar
  • Vöktun viðskiptamannareikninga
  • Samskipti við innheimtuaðila eftir þörfum
  • Almenn gjaldkerastörf
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd innheimtu og fjármálum

Hæfniskröfur

  • Reynsla af innheimtu, gjaldkerastörfum, bókhaldi eða sambærilegum verkefnum er kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af dk eða sambærilegu bókhaldskerfi er kostur
  • Sjálfstæði og hæfni til að fylgja verkefnum eftir
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli

Um VélRás

VélRás ehf. er vélaverkstæði sem hefur sérhæft sig í þjónustu við eigendur vinnuvéla og vörubíla á umliðnum árum. Starfsmenn fyrirtækisins búa yfir áralangri og sérhæfðri reynslu til að fást við flest þau verkefni sem koma hjá viðskipvinum okkar. Vélrás hefur yfir að ráða 5.000 m2 vel útbúnu verkstæði ásamt sérútbúnum þjónustubílum til að veita fulla þjónustu á vettvangi hvar á landi sem er.

VélRás er systurfélag Vélanaust og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Álhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.GjaldkeriPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókariPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)