
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.

Viltu móta framtíð siglingaöryggis?
Siglingasvið Samgöngustofu óskar eftir að ráða einstakling í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á smíðalýsingum, teikningum og eftirlit með hönnun skipa. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á siglingaöryggi, stafrænni vegferð, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður. Starfið hentar jafnt nýútskrifuðum sem reynslumeiri sérfræðingum og er veitt góð þjálfun og stuðningur við að byggja upp sérþekkingu á sviði skipatækni.
Við bjóðum meðal annars upp á sveigjanlegt vinnufyrirkomulag, tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar, fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi og góðan starfsanda og öflugt teymi sérfræðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirfara teikningar og önnur hönnunargögn skipa með hliðsjón af gildandi reglum og stöðlum.
- Veita faglega ráðgjöf og eiga samskipti við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.
- Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.
- Taka þátt í alþjóðlegu samstarfi á vettvangi IMO, EMSA og annarra samstarfsaðila.
- Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum innan vottaðs gæðakerfis skipadeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. skipaverkfræði, skipatæknifræði, vélaverkfræði, véltæknifræði eða sambærilegt.
- Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.
- Jákvæðni og góð samskiptafærni.
- Frumkvæði og góð skipulagshæfni.
- Gott vald á ensku í rituðu og töluðu máli.
- Góð íslenskukunnátta er kostur.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmaður dómara
Héraðsdómur Reykjaness

Lögfræðingur
Útlendingastofnun

Verk- og tæknifræðingar
Verkfræðistofa Suðurnesja

Do You Want to Shape the Future of Maritime Safety?
Samgöngustofa

Verkfræðingur eða tæknifræðingur í iðnaðardeild
Norconsult Ísland ehf.

Byggingarverk- eða tæknifræðingur á framkvæmdasviði
Norconsult Ísland ehf.

Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Fjarskiptastofa

Saksóknarfulltrúar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Sérfræðingur í hönnunarstjórn jarðganga
Vegagerðin

Verkefnastjóri þjónustusviðs (Viðhald og breytingar)
Atlas Verktakar ehf

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA hf