Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.

Verkfræðingur eða tæknifræðingur í iðnaðardeild

Verkfræðistofan Norconsult á Íslandi kemur að fjölbreyttum og metnaðarfullum verkefnum um allt land og víðar. Í iðnaðardeild fyrirtækisins er unnið að ráðgjöf, hönnun og forritun stjórnkerfa fyrir fjölbreytta starfsemi.

Vegna áframhaldandi aukinna umsvifa leitum við nú að verkfræðingi eða tæknifræðingi til starfa í iðnaðardeild fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á stjórnkerfum og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.

Hjá Norconsult á Íslandi færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu teymi sérfræðinga með stuðningi eins stærsta ráðgjafafyrirtækis Norðurlanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf í tengslum við stjórnkerfi
  • Hönnun, forritun og viðhald stjórnkerfa
  • Forritun vegna gangasöfnunar

Við leitum að aðila með

  • Háskólamenntun í verkfræði eða tæknifræði
  • Reynslu af vinnu við stjórnkerfi er kostur
  • Þekking á gagnagrunnum er kostur
  • Góða tölvukunnáttu
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góða samskipta- og samstarfshæfni

Fríðindi í starfi eru til að mynda

  • Tækifæri til að koma að metnaðarfullum og samfélagslega mikilvægum innviðaverkefnum hjá ört vaxandi stofu með sterkan starfsanda og mikla þekkingu
  • Árleg tækifæri til hlutabréfakaupa á sérkjörum
  • Glæsileg vinnuaðstaða í nýju húsnæði að Dalvegi 30A, í hjarta Kópavogs
  • Frábært mötuneyti og líkamsræktaraðstaða í byggingunni
  • Íþrótta- og samgöngustyrkur
  • Símtækjastyrkur, greiddur farsímareikningur og heimanettenging
  • Sveigjanlegur vinnutími

Um Norconsult

Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með yfir 7500 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á íslandi eru unnin verkefn af ýmsum toga á sviðum iðnaðar og orku, innviða, mannvirkja og framkvæmda.

Á Íslandi starfa um 90 manns, þar af um 30 í verk- og tæknifræði og 60 í arkitektúr í sjálfstæðum einingum.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn finnur þú á nýrri heimasíðu www.norconsult.is.

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.

Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is

Umsjón með starfinu hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir ([email protected]).

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar