
EFLA hf
EFLA er leiðandi þekkingarfyrirtæki sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði og tækni.
Starfsfólk samstæðunnar er um 600 talsins á Íslandi og erlendis. EFLA er með svæðisskrifstofur víðsvegar um landið og dótturfélög erlendis.
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem um fjórðungur starfsfólks starfar. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA leitar að metnaðarfullum rafmagnsverkfræðingi eða tæknifræðingi til starfa við fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði raforku, iðnaðar og innviða. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill vinna að stórum og samfélagslega mikilvægum verkefnum í öflugu faglegu umhverfi.
Starfið snýr að hönnun á 400V-11kV rafkerfum og annarri rafmagnstengdri ráðgjöf í iðnaði. Meðal verkefna er hönnun landtenginga fyrir skip og fóðurpramma, hönnun rafdreifingar og lýsingar í götum, jarðgöngum og brúargerð. Hönnun rafdreifingar fyrir gagnaver, fiskeldi, sjávarútveg og annan iðnað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun rafkerfa í iðnaðarumhverfi
- Verkeftirlit
- Val á búnaði
- Gerð kostnaðaráætlana
- Gerð útboðsganga
- Samskipti við viðskiptavini og birgja
- Þátttaka í teymisvinnu þvert á fagsvið EFLU
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rafmagnsverkfræðingur MSc eða rafmagnstæknifræðingur BSc
- Reynsla af verkeftirliti
- Reynsla af hönnun rafkerfa er kostur
- Reynsla af notkun AutoCad og Revit er kostur
- Reynsla af notkun á ETAP er kostur
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
- Metnaður til starfsþróunar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Góður og hollur matur í hádeginu
- Vellíðunarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Hreyfistyrkur
- Fæðingarstyrkur
- Gleraugnastyrkur
- Símastyrkur
- Símaáskrift og heimatenging
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta