

Byggingarverk- eða tæknifræðingur á framkvæmdasviði
Verkfræðistofan Norconsult á Íslandi kemur að fjölbreyttum og metnaðarfullum verkefnum um allt land og víðar. Meðal verkefna á framkvæmdasviði má til dæmis nefna Fossvogsbrú og nýja Ölfusárbrú.
Vegna áframhaldandi aukinna umsvifa leitum við nú að byggingarverkfræðingi eða byggingartæknifræðingi á framkvæmdasvið fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur haldbæra reynslu og áhuga á að taka þátt í metnaðarfullum verkefnum.
Hjá Norconsult á Íslandi færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu teymi sérfræðinga með stuðningi eins stærsta ráðgjafafyrirtækis Norðurlanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæmdareftirlit og eftirfylgni við mannvirkjaverkefni
- Umsjón með afmörkuðum verkefnum og stýring verkefna á framkvæmdastigi
- Ráðgjöf og tæknileg eftirfylgni í tengslum við hönnun og framkvæmd mannvirkja
- Samskipti við verktaka, hönnuði og aðra hagaðila
- Þátttaka í útboðum, verkfundum, framvindueftirliti og úttektum
- Land- og magnmælingar ásamt öðrum verkefnum tengdum framkvæmdasviði
Við leitum að aðila með
- Háskólamenntun í byggingarverk- eða tæknifræði
- Reynslu af verklegum framkvæmdum og framkvæmdaeftirliti
- Reynslu af innviðaverkefnum, jarðvegsframkvæmdum eða öðrum stærri mannvirkjaframkvæmdum
- Góða þekkingu á íslenskum byggingarmarkaði og verklagi
- Drifkraft, skipulagshæfileika og góða samskiptahæfni
- Metnað fyrir faglegum vinnubrögðum og gæðum í framkvæmd
Fríðindi í starfi eru til að mynda
- Tækifæri til að koma að metnaðarfullum og samfélagslega mikilvægum innviðaverkefnum hjá ört vaxandi stofu með sterkan starfsanda og mikla þekkingu
- Árleg tækifæri til hlutabréfakaupa á sérkjörum
- Glæsileg vinnuaðstaða í nýju húsnæði að Dalvegi 30A, í hjarta Kópavogs
- Frábært mötuneyti og líkamsræktaraðstaða í byggingunni
- Íþrótta- og samgöngustyrkur
- Símtækjastyrkur, greiddur farsímareikningur og heimanettenging
- Sveigjanlegur vinnutími
Um Norconsult
Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með yfir 7500 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á íslandi eru unnin verkefn af ýmsum toga á sviðum iðnaðar og orku, innviða, mannvirkja og framkvæmda.
Á Íslandi starfa um 90 manns, þar af um 30 í verk- og tæknifræði og 60 í arkitektúr í sjálfstæðum einingum.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn finnur þú á nýrri heimasíðu www.norconsult.is.
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is
Umsjón með starfinu hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir ([email protected]).
Enska










