

Verkefnastjóri framkvæmda - hafnarmannvirki
Um er að ræða nýtt 100% framtíðarstarf á Umhverfisviði. Upphaf starfs er samkomulagsatriði.
Verkefnastjóri framkvæmda starfar með teymi á sviðinu. Megin tilgangur og markmið starfsins er umsjón og eftirlit með uppbyggingu og viðhaldi hafnarmannvirkja í höfnum Múlaþings, ásamt öðrum spennandi framkvæmdarverkefnum á sviðinu. Óskað er eftir öflugum einstaklingi í góðan hóp starfsfólks, sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri framkvæmda.
Starfskraftur er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum Múlaþings; Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.
Starfið var upphaflega auglýst 13.8 2026 með umsóknarfrest til 31. ágúst 2026 en ákveðið var að framlengja umsóknarfrestinn um eina viku.
- Utanumhald um byggingar og mannvirki í eigu hafna Múlaþings og eignasjóðs.
- Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með viðhaldi.
- Greining og ráðgjöf varðandi mannvirkjaþörf hafna.
- Samskipti við forstöðumenn stofnana.
- Umsjón með nýframkvæmdum.
- Umsjón með gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana sem og útboðsgagna.
- Samskipti við hönnuði og verktaka, sitja verkfundi.
- Árlegar úttektir eftir þörfum.
- Krafist er háskólaprófs á grunnstigi (BA/BS) í verk-, tækni- eða byggingarfræði.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
- Góð þekking og reynsla á sviði framkvæmda.
- Iðnmenntun er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun og gerð áætlana.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni og góð þjónustulund.
- Góð almenn tölvukunnátta
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í máli og ritun
Sveigjanlegur vinnutími, heilsueflingastyrkur.
Íslenska
Enska










