

Forstöðumaður Reiðufjárreksturs á Reiðufjársviði RB
Við erum að styrkja hópinn okkar og leitum að einstaklingi með reynslu sem hefur áhuga á rekstri vélbúnaðar og sjálfsafgreiðslutækja fyrir reiðufé auk sérhæfðs húsnæðis tengt slíkum rekstri.
Forstöðumaður Reiðufjárreksturs ber heildarábyrgð á þeim eignum, staðsetningum, húsnæði og öðrum efnislegum innviðum sem reiðufjárþjónusta RB byggir á. Hlutverkið tryggir að þessir innviðir séu öruggir, hagkvæmir, aðgengilegir og hæfir til að styðja samfelldan rekstur seðlavers og sjálfsafgreiðslutækja yfir líftíma þeirra.
Forstöðumaður er hluti af stjórnendateymi reiðufjársviðs, ber ábyrgð á mönnun, rekstri og fjárhag og vinnur náið með forstöðumanni reiðufjárþjónustu, stoðdeildum RB og samþykktum birgjum.
RB leitar að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt en getur líka unnið vel í hóp. Verkefni næstu missera er samningagerð við birgja, gerð vinnulýsinga, undirbúningur, hönnun og skipulag rekstrarins. Hér er því á ferðinni mjög spennandi verkefni fyrir metnaðarfullan einstakling sem hefur áhuga á því að takast á við krefjandi verkefni í frábæru teymi.
Helstu verkefni
Ber ábyrgð á og hefur yfirsýn yfir rekstur reiðufjárþjónustu RB. Byggir upp og ræktar sterk tengsl við birgja og lykildeildir RB.
Situr í Framþróunarhóp reiðufjárþjónustu RB og ber ábyrgð á framþróun rekstrarins í samstarfi við viðskiptavini RB og vöruteymi RB fyrir þjónustuna.
Ber ábyrgð á samskiptum við lykilbirgja og samstarfsaðila sem koma að rekstri reiðufjárþjónustu RB og tryggir öflugt samstarf við stoðdeildir fyrirtækisins sem styðja við rekstur, öryggi og tæknilega innviði þjónustunnar
Viðkomandi ber ábyrgð á og þróar verklagsreglur og vinnulýsingar, uppfærir áhættumöt í rekstrinum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum
Megin verkefni til loka árs 2027 er þátttaka í samrekstrarverkefni hraðbanka hjá RB í samstarfi við íslensku bankanna.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg en ekki nauðsynleg
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og faglegur metnaður
Framúrskarandi hæfileikar á sviði samskipta og samvinnu
Góð færni í íslensku og ensku
Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur hvetjum við þig engu að síður til að sækja um. Þú gætir verið nákvæmlega sá einstaklingur sem við leitum að, í þetta eða annað starf hjá RB.
RB er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður með sterka vinnustaðamenningu þar sem starfsfólki gefst tækifæri til að læra, vaxa og þróast í starfi. Starfsánægja hefur verið há um árabil og endurspeglar metnað okkar til að hlúa vel að starfsfólki.
RB er fjölskylduvænn vinnustaður sem leggur áherslu á velferð starfsfólks og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur hvers vegna þú hefur áhuga á starfinu og hvernig reynsla þín, þekking og hæfni nýtast í hlutverkinu.
Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2027.
Nánari upplýsingar veitir Eysteinn Jónsson framkvæmdastjóri Reiðufjársviðs RB, sími 822 5966, netfang [email protected]. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Íslenska
