

Framkvæmdastjóri
Viltu leiða öflugt og rótgróið fyrirtæki með sterka stöðu á markaði og spennandi tækifæri fram undan?
Garðlist leitar að kraftmiklum og árangursdrifnum framkvæmdastjóra sem vill takast á við áframhaldandi þróun fyrirtækisins. Hér er einstakt tækifæri til að leiða öfluga starfsemi, vinna með sterku teymi og hafa raunveruleg áhrif á rekstur, menningu og framtíðarstefnu félagsins.
Við leitum að sterkum leiðtoga sem sér tækifæri, fær fólk með sér og hefur bæði metnað og framkvæmdakraft til að leiða Garðlist inn í næsta kafla. Starfið hentar einstaklingi sem nýtur þess að vera nálægt rekstrinum og fólkinu, en hefur jafnframt skýra sýn á hvernig hægt er að þróa starfsemina, sækja fram og skapa enn sterkari stöðu til framtíðar.
Eitt af lykilverkefnum nýs framkvæmdastjóra verður að leiða Garðlist inn í nýjan kafla með uppbyggingu og flutningi starfseminnar í 3.800 fermetra höfuðstöðvar við Tunguháls árið 2027.
Starfssvið:
- Byggja upp og innleiða skýrar rekstrar- og fjárhagsáætlanir og tryggja markvissa eftirfylgni með þeim.
- Setja upp mælanleg markmið fyrir stjórnendur og starfsemina í heild.
- Tryggja að ákvarðanir, markmið og verkefni séu framkvæmd með skýrri ábyrgð og reglulegri eftirfylgni.
- Stuðla að árangursríkum og skilvirkum daglegum rekstri fyrirtækisins.
- Veita stjórnendateymi félagsins skýra leiðsögn, stuðning og eftirfylgni.
- Ábyrgð á rekstrarlegum og fjárhagslegum árangri fyrirtækisins.
- Móta stefnu, markmið og áherslur í samstarfi við eigendur og stjórn og tryggja að þeim sé fylgt eftir.
- Leiða öflugt fyrirtæki í áframhaldandi þróun og byggja ofan á þann sterka grunn sem þegar er til staðar.
- Hafa góða yfirsýn yfir verkefni, þjónustusamninga, mannafla og helstu rekstrarþætti.
- Efla samstarf, ábyrgð og árangursdrifna menningu þvert á fyrirtækið.
- Viðhalda og þróa sterk tengsl við lykilviðskiptavini og samstarfsaðila og tryggja framúrskarandi þjónustu.
- Leiða umbætur og þróun sem stuðlar að skilvirkari rekstri og auknum gæðum.
- Greina ný tækifæri og leiða áframhaldandi þróun og vöxt Garðlistar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Farsæl stjórnunar- og leiðtogareynsla.
- Reynsla af rekstri þjónustufyrirtækis og/eða verkefnadrifins reksturs er kostur.
- Góð þekking og reynsla af áætlanagerð og árangursstjórnun.
- Árangursrík reynsla af því að leiða stjórnendur, byggja upp öflug teymi og skapa skýra sýn.
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Sterk samskipta- og samstarfshæfni og geta til að virkja fólk og skapa traust.
- Skipulögð og markviss vinnubrögð ásamt góðri yfirsýn og hæfni til að forgangsraða.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að byggja upp traust viðskiptatengsl.
- Framsýni og metnaður til að þróa rekstur, greina tækifæri og leiða fyrirtækið áfram.
- Reynsla af breytingastjórnun og umbótaverkefnum.
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni.
- Hæfni til að taka ákvarðanir og fylgja þeim eftir.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Garðlist er öflugt og rótgróið þjónustufyrirtæki sem hefur vaxið og þróast stöðugt frá stofnun árið 1989. Í dag stendur fyrirtækið á sterkum grunni, með öflugt starfsfólk, fjölbreytt verkefni og traust viðskiptasambönd sem hafa byggst upp á áratuga reynslu, fagmennsku og góðri þjónustu.
Starfsemi Garðlistar er umfangsmikil og fjölbreytt allt árið um kring. Fyrirtækið þjónustar einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og sveitarfélög og býður fjölbreytta þjónustu við garða og græn svæði ásamt öflugri vetrarþjónustu.
Garðlist stendur á sterkum grunni og tækifærin fram undan eru fjölmörg. Metnaðurinn er að sækja áfram fram, þróa þjónustuna og nýta þau tækifæri sem markaðurinn býður upp á. Með öflugt teymi, mikla reynslu og sterka stöðu á markaði hefur Garðlist alla burði til að vaxa enn frekar og styrkja stöðu sína sem eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði
www.gardlist.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. september nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska










