
Sérfræðingur í rekstri, stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet leitar að metnaðarfullum og ábyrgum liðsfélaga til að styrkja teymi sérfræðinga sem sinnir rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og sjálfvirknivæðingu í flutningskerfi raforku. Hlutverk teymisins er að undirbúa Landsnet fyrir framtíðina – hvort sem það felur í sér nýja tækni, aukinn raforkuflutning, nýja viðskiptavini eða breyttar áherslur í orkumálum.
Landsnet er framarlega í notkun stafrænna lausna í orkuflutningi. Í starfinu sameinast rafmagnsþekking og verkleg vinna við stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði í tengivirkjum. Þú tekur þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg samfélagsáhrif og styður við stafræna þróun flutningskerfisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Rekstur og eftirlit með stjórn- og varnarbúnaði.
- Innleiðing nýrrar tækni í stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfa.
- Verkleg vinna á vettvangi, m.a. mælingar, prófanir og uppsetning búnaðar.
- Þátttaka í greiningu gagna og upplýsinga til að bæta rekstur og öryggi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði rafiðn-, rafmagnstækni-, rafmagnsverk- eða tölvunarfræði. Marktæk starfsreynsla getur komið í stað formlegrar menntunar.
- Þekking og reynsla í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og/eða raforkukerfum er kostur.
- Reynsla og þekking á háspennubúnaði er kostur.
- Góð hæfni í uppbyggilegum samskiptum og samvinnu.
Landsnet býður þér:
- Tækifæri til að hafa áhrif á samfélagslega mikilvæg verkefni og móta stafrænan rekstur flutningskerfisins.
- Gott vinnuumhverfi þar sem áhersla er á faglegan stuðning og þjálfun.
- Góð aðstaða á vinnustaðnum, m.a. líkamsrækt og mötuneyti.
- Samstarf við fjölbreytt, áhugasamt og þekkingarmikið starfsfólk.
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2026. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Vilborg Þórðardóttir í síma 511 1225.
Íslenska
Enska