Garnes Data
Garnes Data
Garnes Data

Ráðgjafi í tækni- og notendaþjónustu

Garnes Data óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan einstakling í starf ráðgjafa í upplýsingatækni. Ráðgjafi sinnir fjölbreyttum verkefnum, veitir tæknilega þjónustu og ráðgjöf, fylgir eftir verkefnum, veitir þjónustu á vettvangi og byggir upp traust og góð tengsl við viðskiptavini. Að auki mun hann taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins og framtíðarsýn þess.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur getu til þess að vinna sjálfstætt og brennandi áhuga á að læra nýja hluti og tileinka sér tækninýjungar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita viðskiptavinum notenda aðstoð og tæknilega þjónustu, bæði í fjarþjónustu og á starfsstöðvum þeirra
  • Taka á móti þjónustubeiðnum, greina bilanir og fylgja eftir úrlausn mála
  • Sinna uppsetningu, viðhaldi og bilanagreiningu á tölvum, vélbúnaði og hugbúnaði
  • Veita þjónustu og stuðning í Microsoft-umhverfi
  • Aðstoða við rekstur og bilanagreiningu netkerfa
  • Styðja fyrirtæki í rekstri á sínu tækniumhverfi
  • Byggja upp og rækta traust tengsl við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af upplýsingatækniþjónustu, bilanagreiningu og almennum tæknistörfum
  • Haldbær reynsla af rekstri og þjónustu á netkerfum, tölvum og öðrum tölvubúnaði
  • Góð þekking á Windows og Microsoft 365 er skilyrði
  • Reynsla af störfum hjá upplýsingatæknifyrirtæki eða sambærilegu þjónustuumhverfi er kostur
  • Viðeigandi tæknimenntun eða fagvottanir
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Silfursmári 12
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar