

Skrifstofustjóri - Við leitum af metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og ábyrgum einstaklingi í starf skrifstofustjóra.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem viðkomandi verður í lykilhlutverki í daglegum rekstri félagsins og starfar náið með framkvæmdastjóra að stjórnun, skipulagningu og þróun starfseminnar.
Við leitum að einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti, hefur góða tölvukunnáttu og sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Frekari upplýsingar veitir Pétur Steinar í síma 781-2969 eða á [email protected]
-
Umsjón með daglegum skrifstofurekstri.
-
Sala á fiski og samskipti við kaupendur og seljendur.
-
Náið samstarf við framkvæmdastjóra um daglegan rekstur.
-
Skipulagning starfsmannamála og samhæfing verkefna.
-
Þjónusta og samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila.
-
Eftirfylgni með verkefnum, upplýsingum og verkferlum.
-
Þátttaka í umbótum og áframhaldandi þróun félagsins.
- Og önnur tilfallandi störf.
-
Góð tölvukunnátta.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
-
Sjálfstæð, skipulögð og ábyrg vinnubrögð.
-
Frumkvæði, jákvæðni og lausnamiðuð hugsun.
-
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
-
Hæfni til að vinna undir álagi.
-
Reynsla af skrifstofustörfum, stjórnun, sölu eða sjávarútvegi er kostur en ekki skilyrði.
Íslenska










