

Sölumaður
Garðlist ehf auglýsir eftir sveigjanlegum, hressum og skemmtilegum sölumanni á skrifstofu fyrirtækisins í fjölbreytt verkefni.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sölu, kann að veita framúrskarandi þjónustu og þekkir hvernig á byggja upp langtímaviðskiptasamband. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar vel einstaklingi sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk og finna lausnir.
- Helstu verkefni
-
Sala og ráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina.
-
Móttaka og eftirfylgni fyrirspurna og sölutækifæra.
-
Tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða.
-
Uppbygging og viðhald öflugra viðskiptasambanda.
-
Náið samstarf við verkefnastjóra við skipulagningu og eftirfylgni verkefna.
-
Greining nýrra viðskiptatækifæra
-
-
Reynsla af sölu og þjónustustörfum.
- Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur.
-
Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.
-
Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
-
Góð viðskiptavitund og hæfni til að greina þarfir viðskiptavina.
-
Frumkvæði, metnaður og hæfni til að fylgja málum eftir.
-
Góð almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi.
- Reynsla af notkun Dynamics 365 er kostur.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Niðurgreiddur hádegismatur
Enska
Íslenska










