
Verne
We’ve found the best place in the world for high intensity compute. Right here, in Iceland. Using 100% renewable energy, we give you supernatural capability that doesn’t cost the Earth. When you're backed by the planet, your potential is limitless.
Forstöðumaður viðskipta- og samningsmála (Senior Commercial Manager)
Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í stöðu forstöðumanns viðskipta- og samningsmála sem mun leiða viðskiptalega, samningslega og fjárhagslega stjórnun umfangsmikillar uppbyggingar gagnavers.
Viðkomandi mun starfa á framkvæmdastað og felur starfið í sér stefnumótandi ábyrgð á innkaupum, samningsumsýslu, kostnaðareftirliti, breytingastjórnun, kröfum, áhættustýringu og uppgjöri verkefnisins með það að markmiði að tryggja að hagsmunir verkkaupa séu ávallt í fyrirrúmi.
Um er að ræða lykilhlutverk í yfirstjórn verkefnisins þar sem tækifæri gefst til að hafa veruleg áhrif á viðskiptalegan árangur og verðmætasköpun gagnaversins í flóknu og hröðu verkefnaumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með viðskiptalegri stjórnun verkefnisins allt frá innkaupaferli, samningsgerð og framkvæmdum til lokauppgjörs.
- Annast umsýslu FIDIC samninga og tryggja að farið sé eftir samningsskilmálum, tilkynningarskyldum, greiðsluákvæðum, breytingaferlum og ferlum vegna ágreiningsmála.
- Ábyrgð á breytingastjórnun, viðbótar- og breytingaverkum, kröfum, framlengingarbeiðnum á verktíma og samningaviðræðum.
- Yfirumsjón með kostnaðareftirliti, fjárhagsáætlanagerð, kostnaðarspám, sjóðstreymi, áhættustýringu og skýrslugerð.
- Styðja við og veita verkefnastjórum og lykilhagaðilum ráðgjöf vegna kostnaðar.
- Tryggja öfluga stjórnarhætti varðandi samninga, áhættu, breytingar og kröfur.
- Samskipti og samstarf við lögfræðinga, innkaupateymi, verkefnastjóra, framkvæmdateymi og aðra hagsmunaaðila.
- Leiða lokauppgjörsviðræður og styðja við farsæl verklok.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af viðskiptastjórnun, samningsumsýslu eða kostnaðarráðgjöf (quantity surveying) í stórum verkefnum tengdum mannvirkjum, innviðum, iðnaði, gagnaverum eða öðrum tæknilega krefjandi verkefnum.
- Góð þekking á FIDIC samningum.
- Reynsla af stjórnun umfangsmikilla verkþátta tengdum MEP kerfum, raforkuinnviðum, varaafli, kælikerfum og gangsetningu.
- Mjög góð viðskipta- og fjármálaþekking, samningatækni og hæfni í samskiptum við hagaðila.
- Háskólamenntun á sviði viðskipta, verkfræði, lögfræði eða sambærilegra greina.
- Fagvottanir á borð við MRICS, MCIOB, PMP, CIArb, AACE eða sambærilegar vottanir eru kostur.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar og leiðtogahæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur8. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
FjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSamningagerðSjálfstæð vinnubrögðSjóðsstreymiViðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Director Finance, Fish
JBT Marel

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Sérfræðingur í fjármálum
Abler - Sport Matters

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.