SÁÁ
SÁÁ
SÁÁ

Starfsþjálfun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf

SÁÁ auglýsir launaðar stöður í starfsþjálfun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.

SÁÁ er leiðandi í heilbrigðisþjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Hjá okkur starfar öflugt þverfaglegt teymi að fjölbreyttri meðferð og þjónustu þar sem fagmennska, virðing og samvinna eru í fyrirrúmi.

Við bjóðum upp á launaða starfsþjálfun í 100% starfshlutfalli fyrir einstaklinga sem stefna að því að öðlast starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar.

Starfsþjálfunin er hluti af þeirri þjálfun sem þarf til að uppfylla skilyrði Embættis landlæknis fyrir starfsleyfi áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Nemar starfa undir handleiðslu reyndra áfengis- og vímuefnaráðgjafa og annarra fagaðila og öðlast fjölbreytta reynslu af meðferð fólks með fíknsjúkdóm.

Í starfsþjálfuninni gefst tækifæri til að þróa færni í einstaklingsviðtölum, hópastarfi, fræðslu og stuðningi við sjúklinga og aðstandendur. Jafnframt fá nemar reynslu af þverfaglegu samstarfi og þeirri fjölbreyttu heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í áfengis- og vímuefnaráðgjöf undir handleiðslu
  • Stuðningur, ráðgjöf og samskipti við sjúklinga og aðstandendur
  • Þátttaka í einstaklingsviðtölum, hópastarfi og fræðslu
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Önnur verkefni sem tengjast starfsþjálfun og starfssviði áfengis- og vímuefnaráðgjafa
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun er skilyrði
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Hæfni og áhugi á að vinna með fólki í krefjandi aðstæðum
  • Geta og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Ábyrgð, fagmennska og frumkvæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið námi í fræðilegri undirstöðuþekkingu áfengis- og vímuefnaráðgjafar við Símenntun Háskólans á Akureyri
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stórhöfða 45
Grundarhverfi , 116 Reykjavík
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Samviskusemi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar