

Hjúkrunarfræðingur á næturvaktir á nýrri bráðamatsdeild F2 í Fossvogi
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi til starfa á nýrri bráðamatsdeild F2 Fossvogi, í 50-60% næturvaktahlutfalli. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga, takast á við áskoranir í starfi, efla klíníska færni sína og verða framúrskarandi í mati og meðferð bráðveikra sjúklinga.
Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráð veikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks og stuðla að öflugri þverfaglegri teymisvinnu, með áherslu á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði, innan eða utan spítalans.
Deildin er opin allan sólarhringinn og unnið er í vaktavinnu. Starfshlutfall er 50-100%, þar af 50-60% næturvaktir. Upphaf starfa er eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
















































