
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla höfuðborgasvæðisins (HH) leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi til þess að sinna starfi teymisstjóra við Upplýsingamiðstöð HH. Viðkomandi ber ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við forstöðumann. Þetta er kjörið tækifæri fyrir skipulagðan og lausnamiðaðan einstakling sem vill takast á við ábyrgðamikið hlutverk í öflugu teymi. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi.
Ráðið verður í 70–100% starf á dagvinnutíma, tímabundið til eins árs, frá og með 1. nóvember nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar má finna inni á www.island.is/starfatorg
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast daglegt skipulag og vaktstjórn á virkum dögum
- Hefur umsjón með símtölum Héraðsvaktar
- Umsjón með vaktsíma Upplýsingamiðstöðvar
- Ber ábyrgð á daglegri skráningu í sjúkraskráningakerfi
- Veitir faglega ráðgjöf í síma og á netspjalli til skjólstæðinga
- Er ráðgjafandi fyrir þjónustufulltrúa
- Ber ábyrgð á skipulagi dagvakta á Upplýsingamiðstöð
- Ber ábyrgð á daglegum samskiptum við heilbrigðisstofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- A.m.k. 5 ára starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögðum
- Skipulagshæfileikar og hæfni til að hafa yfirsýn undir álagi
- Lausnarmiðuð hugsun og viðbragð
- Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
- Þekking og hæfni til að meta þarfir skjólstæðinga og finna viðeigandi úrlausnir
- Þekkir vel heilbrigðiskerfið og úrræði þess
- Mjög góð tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Árbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarmanneskja á heyrnarsviði - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heilsugæsluritari - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á L5 Landakoti
Landspítali

Viðskiptastjóri á Lyfjasviði (Pfizer)
Icepharma

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa hjá Heilsuvernd
Heilsuvernd

Sérfræðinám í hjúkrun og ljósmóðurfræði
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - 50-70% starf í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Hrafnista

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga A4 Fossvogi
Landspítali

Innköllunarstjóri - Dagdeild BH
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur / Sjóntækjafræðingur
Sjónlag