

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - 50-70% starf í Ylju
Auglýst er eftir starfsfólki í 50-70% starf í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - neyslurýmið Ylju.
Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, læknum/læknanemum, bráðatæknum, félagsráðgjöfum, sálfræðingum eða fólki með annan félagsfræðilegan bakgrunn, reynslu og þekkingu sem getur komið að gagni í hlutastarf í skaðaminnkunarverkefni félagsins, neyslurýmið Ylju.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu.
Hvað er Ylja?
✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Standa vaktina í neyslurými ásamt öðru starfsfólki
- Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
- Önnur tilfallandi verkefni tengd skaðaminnkun
Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að:
- Starfsmaður með menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi, heilbrigðismenntun kostur
- Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla í vettvangsstarfi
- Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins
- Hæfni til að vinna í notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumálakunnátta er kostur
📅 Umsóknarfrestur: Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
📩 Nánari upplýsingar:
Dóra Björt Guðjónsdóttir, deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins
✉️ dorabjort@redcross.is
Íslenska
Enska










