

Sjúkraliði - Blóðbankinn Glerártorgi
Sjúkraliði óskast til starfa hjá Blóðbankanum á Glerártorgi og Blóðbankabílnum Björgu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma. Starfshlutfall er eftir samkomulagi en getur verið frá 66,7% -100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Í Blóðbankanum starfa um 55 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, náttúrfræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofufólk og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið alls starfsfólks að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans. Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að¿samþætta¿betur vinnu og einkalíf.
Íslenska



































